Framboðsfrestur liðinn - hvað þá?

Verkefni yfirkjörstjórnar að liðnum framboðsfresti

Hinn 15. apríl 2009, daginn eftir að framboðsfrestur rennur út, heldur yfirkjörstjórn fund þar sem hún fer yfir framkomin framboð og skal umboðsmönnum framboðslista gefinn kostur á að vera viðstaddir.

Gallar á framboði
Finnist gallar á framboðslista skal umboðsmönnum gefinn kostur á að leiðrétta þá og má veita frest í því skyni eftir því sem tími og atvik leyfa. Ef gallar sem yfirkjörstjórn hefur bent á eru ekki leiðréttir innan tiltekins frests kveður hún upp úrskurð um hvort það leiði til ógildingar listans.

Verði ágreiningur innan yfirkjörstjórnar ræður afl atkvæða úrslitum.

Framboðslisti úrskurðaður ógildur
Ef framboðslisti er úrskurðaður ógildur skal eftirrit af úrskurði þá þegar afhent hlutaðeigandi umboðsmanni eða umboðsmönnum ásamt eftirriti af þeim framboðslista sem ógildingin á við um.

Ógildingarúrskurði yfirkjörstjórnar má skjóta til landskjörstjórnar innan sólarhrings frá því hann var kveðinn upp.

Merking framboðslista með bókstaf
Yfirkjörstjórn merkir svo lista stjórnmálasamtaka með bókstöfum með hliðsjón af auglýsingu dómsmálaráðuneytisins um listabókstafi.


Hlutverk landskjörstjórnar að liðnum framboðsfresti

Eftir að yfirkjörstjórn hefur lokið við merkingu listanna skal hún senda þá til landskjörstjórnar sem tekur þá til meðferðar og úrskurðar, ef þörf krefur, hvaða stjórnmálasamtökum framboðslistar sem í kjöri verða við kosningarnar tilheyra. Þá gætir landskjörstjórn þess að listar sem saman eiga séu merktir sama bókstaf í öllum kjördæmum. Umboðsmönnum stjórnmálasamtaka skal gefinn kostur á að vera viðstaddir þegar landskjörstjórn kemur saman í þessu skyni.

Auglýsing framboðslista
Eigi síðar en 20. apríl 2009 skal landskjörstjórn kunngera almenningi listana með auglýsingu. Í auglýsingu skal tilgreina bókstaf hvers lista, fyrir hvaða stjórnmálaflokk hann er borinn fram og nöfn frambjóðenda á hverjum lista í réttri röð ásamt starfsheiti þeirra og heimili.

 

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.