Leiðbeiningar fyrir framboð
Yfirlit
Að hverju þarf að huga áður en framboði er skilað til yfirkjörstjórnar?
Gæta skal þess að á framboðslista séu tvöfalt fleiri frambjóðendur en nemur þingsætum í kjördæminu, hvorki fleiri né færri. Ef yfirkjörstjórn berst listi með fleiri nöfnum en tilskilið er skal nema burt af listanum öll nöfn sem eru umfram tilskilda tölu.
Með framboði þarf að koma skýrt fram nafn frambjóðanda, kennitala hans, heimili og staða eða starfsheiti, svo enginn vafi leiki á því við hvern er átt. Skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru, þess efnis að þeir hafi veitt leyfi til að setja nöfn sín á listann, skal fylgja framboði.
Fjöldi meðmælenda við lista skal vera margfeldi af þingsætatölu kjördæmisins og talnanna 30 að lágmarki og 40 að hámarki. Þetta felur í sér að fjöldi yfirlýstra stuðningsmanna lista í kjördæmi með 10 þingsæti skal vera á bilinu 300-400, en á bilinu 330-440 í kjördæmi með 11 þingsæti. Skrifleg yfirlýsing meðmælenda þarf að fylgja framboðinu.
Fram þarf að koma skrifleg tilkynning um það hverjir tveir séu umboðsmenn lista.
Tilgreina þarf nafn framboðsins.
Framboði skal fylgja skrifleg yfirlýsing meðmælenda hans um það fyrir hvaða stjórnmálasamtök listinn er boðinn fram.
Framboðsfrestur rennur út kl. 12 á hádegi 14. apríl 2009.
Ef stjórnmálasamtök sem ekki hafa skráðan listabókstaf hyggjast bjóða fram lista við alþingiskosningar þá skal tilkynna það dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en kl. 12 á hádegi 11. apríl 2009. Tilkynningin skal undirrituð af 300 kjósendum. Heiti nýrra stjórnmálasamtaka má ekki vera þannig að villst verði á því og heiti samtaka sem eru þegar á skrá með listabókstaf hjá ráðuneytinu. Dómsmálaráðuneytið ákveður bókstaf nýrra samtaka að fengnum óskum þeirra og með hliðsjón af listabókstöfum annarra stjórnmálasamtaka í undangengnum kosningum.
Skilyrði til að vera á framboðslista
Kjörgengi
Kjörgengur við kosningar til Alþingis er hver sá sem á kosningarétt auk þess að hafa óflekkað mannorð. Hæstaréttardómarar og umboðsmaður Alþingis eru þó ekki kjörgengir. Sá sem sekur hefur gerst um verk sem er svívirðilegt að almenningsáliti telst hafa flekkað mannorð nema hann hafi fengið uppreist æru sinnar. Dómur fyrir refsivert brot hefur ekki flekkun mannorðs í för með sér nema sakborningur hafi verið 18 ára að aldri þegar hann framdi brotið og refsing sé a.m.k. fjögurra mánaða fangelsi óskilorðsbundið eða öryggisgæsla sé dæmd.
Alþingi úrskurðar um kjörgengi þeirra sem kosnir eru.
Skriflegt samþykki frambjóðanda
Skriflegt samþykki frambjóðanda verður að liggja fyrir um að hann hafi leyft að nafn hans yrði sett á listann þegar framboði er skilað til yfirkjörstjórnar. Að öðrum kosti skal yfirkjörstjórn nema nafn hans burt af listanum. Þá getur frambjóðandi afturkallað samþykki sitt til framboðs fram til þess að frestur til að skila framboðum rennur út.
Má einungis vera á einum lista
Við hverjar alþingiskosningar má enginn bjóða sig fram á fleiri en einum framboðslista. Ef maður hefur hins vegar skriflega leyft að nafn hans sé á fleiri en einum lista skal yfirkjörstjórn nema það nafn burt af listunum.
Skilyrði til að vera meðmælandi
Meðmælandi skal vera með kosningarétt í viðkomandi kjördæmi og má aðeins mæla með einum lista við hverjar alþingiskosningar. Ef sami kjósandi hefur mælt með fleira en einu framboði verður hann ekki talinn meðmælandi neins þeirra. Kjósandi getur ekki afturkallað stuðningsyfirlýsingu sína eftir að frestur til að skila framboðum rennur út.
Umboðsmenn
Hverjum framboðslista skal fylgja tilkynning til yfirkjörstjórnar um það hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans. Umboðsmenn gæta réttar þess lista sem þeir eru fyrir við skoðun og úrskurð listanna. Þar gefa þeir þær upplýsingar um listana sem yfirkjörstjórn óskar. Einnig er þeim heimilt að vera viðstaddir eða gefa öðrum umboð til að vera viðstaddir kosningar á einstökum kjörstöðum og við talningu atkvæða. Þar ber þeim að hlíta reglum þeim sem kjörstjórn setur.
Tveir umboðsmenn mega vera viðstaddir þegar landskjörstjórn úrskurðar, ef þörf krefur, hvaða stjórnmálasamtökum framboðslisti sem fram hefur komið tilheyri, svo og við öll störf landskjörstjórnar við úthlutun þingsæta.
Frambjóðandi deyr eftir lok framboðsfrests
Ef frambjóðandi lista deyr eftir lok framboðsfrests eða á næstu þremur sólarhringum áður en framboðsfrestur er liðinn en áður en kosningar fara fram, má innan viku, ef fullur helmingur meðmælenda listans krefst þess, setja annan mann í stað hins látna á listann, enda sé fullnægt öðrum almennum skilyrðum um listann. Ef öllum skilyrðum er fullnægt skal yfirkjörstjórn tafarlaust tilkynna það dómsmálaráðuneytinu og landskjörstjórn, sem birtir listann þannig breyttan í Lögbirtingablaði og í öðrum fjölmiðlum.

