Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar getur hafist á morgun, laugardaginn 14. mars

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar getur hafist á morgun, laugardaginn 14. mars

Þar sem kjördagur fyrir kosningar til Alþingis hinn 25. apríl 2009 hefur verið formlega ákveðinn mun utankjörfundarkosning hefjast hjá sýslumönnum og utanríkisþjónustunni svo fljótt sem kostur er, í samræmi við 56. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur sent sýslumönnum bréf þar sem lögð er áhersla á að atkvæðagreiðslan geti hafist þegar á morgun, laugardaginn 14. mars 2009. Sýslumenn auglýsa hver á sínum stað hvar og hvenær atkvæðagreiðslan getur farið fram.

Samkvæmt lögum um alþingiskosningar hefur kjósandi sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi heimild til að greiða atkvæði utan kjörfundar, eftir þeim reglum sem settar eru í kosningalögunum, nr. 24/2000.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram á eftirfarandi stöðum:

  • Hjá sýslumönnum um allt land, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Þá getur sýslumaður einnig ákveðið að atkvæðagreiðsla á aðsetri embættis fari fram á sérstökum stað utan aðalskrifstofu svo og að atkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stað í umdæmi hans.
  • Hjá hreppstjórum, á skrifstofu eða heimili hreppstjóra.
  • Erlendis, á skrifstofu sendiráðs eða fastanefndar hjá alþjóðastofnun, í sendiræðisskrifstofu eða í skrifstofu kjörræðismanns samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið getur þó ákveðið að utankjörfundaratkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stöðum erlendis. Utanríkisráðuneytið auglýsir einnig hvar og hvenær atkvæðagreiðsla geti farið fram erlendis. Sjá nánar á vef utanríkisráðuneytisins.
  • Sjúkrahúsum, fangelsum, dvalar- og vistheimilum. Kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða vistmaður þar, á dvalarheimili aldraðra eða stofnun fyrir fatlaða, er heimilt að greiða atkvæði á stofnuninni. Með sama hætti fer um vistmann fangelsis. Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar. Hún má þó ekki fara fram fyrr en í fyrsta lagi 3 vikum fyrir kjördag.
  • Heimahúsi. Kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun, sbr. framangreint.  Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans.  Slík atkvæðagreiðsla má þó ekki fara fram fyrr en í fyrsta lagi 3 vikum fyrir kjördag.  

 

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
13. mars 20009



 

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.