Tveimur nýjum listabókstöfum úthlutað
Dómsmálaráðuneytið auglýsti 23. febrúar síðastliðinn hvaða stjórnmálaflokkar og samtök buðu fram í síðustu kosningum og eru það eftirtaldir:
-
B-listi Framsóknarflokkurinn
-
D-listi Sjálfstæðisflokkurinn
-
F-listi Frjálslyndi flokkurinn
-
I-listi Íslandshreyfingin
-
S-listi Samfylkingin
-
V-listi Vinstrihreyfingin – grænt framboð
Nú hafa fimm stjórnmálasamtök að auki fengið skráðan listabókstaf og fengið senda tilkynningu þar um, nú síðast var úthlutað stöfunum N til Samtaka um réttlæti og P til Lýðræðishreyfingarinnar:
-
A-listi Framfaraflokkurinn
-
L-listi Listi fullveldissinna
-
N-listi Samtök um réttlæti
-
O-listi Borgarahreyfingin
-
P-listi Lýðræðishreyfingin
Óski fleiri eftir listabókstaf mun ráðuneytið auglýsa þá um leið og ákvörðun liggur fyrir. Þó að stjórnmálaflokkar eða samtök hafi fengið úthlutað listabókstaf er það ekki formleg tilkynning um framboð. Landskjörstjórn auglýsir framboðslista eigi síðar en 20. apríl 2009.

