Auglýsing frá landskjörstjórn um mörk kjördæmanna í Reykjavík

Frá landskjörstjórn 3. apríl 2009

Mörk Reykjavíkurkjördæmanna tveggja eru ekki lögákveðin heldur er landskjörstjórn falið í 7. gr. laga um kosningar til Alþingis að ákvarða mörk þeirra og auglýsa opinberlega. Þegar mörkin eru dregin skal miða við að kjósendur að baki hverju þingsæti séu nokkurn veginn jafnmargir í hvoru kjördæmi og að þau séu sem samfelldust heild. Við þessa athugun ber að taka mið af íbúaskrá þjóðskrár fjórum vikum fyrir kjördag.

Í dag, föstudaginn 3. apríl 2009, birtist auglýsing í Stjórnartíðindum þar sem landskjörstjórn gerir kunnugt um mörk Reykjavíkurkjördæmanna. Samkvæmt henni eru mörkin milli kjördæmanna í Reykjavík þau sömu og við síðustu alþingiskosningar 2007. Grafarholtshverfi (póstnúmer 113), austan Vesturlandsvegar, skiptist því milli suður- og norðurkjördæmis um Kristnibraut og Gvendargeisla. Ingunnarskóli verður sem fyrr kjörstaður fyrir bæði kjördæmin í Grafarholti. Þá tilheyrir Kjalarnes (póstnúmer 116) Reykjavíkurkjördæmi norður. Kjósendur sem búa við sunnanverða Hringbraut eða Miklubraut verða á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi suður en þeir sem búa við þessar götur að norðanverðu eru á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár fjórum vikum fyrir kjördag eru 87.532 kjósendur alls á kjörskrárstofni í Reykjavík. Skipting milli kjördæma er þannig að í Reykjavíkurkjördæmi suður eru 43.748 kjósendur eða 49,98% af fjölda kjósenda í Reykjavík. Í Reykjavíkurkjördæmi norður eru 43.784 kjósendur eða 50,02% af fjölda kjósenda í Reykjavík.

Meðfylgjandi eru uppdrættir sem sýna mörk milli Reykjavíkurkjördæma með blárri línu og mörk kjörsvæða í Grafarholti:

Kjörhverfi og kjörstaðir við alþingiskosningarnar 25. apríl 2009

Mörk kjörsvæða í Grafarholti við alþingiskosningarnar 25. apríl 2009


 

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.