Upplýsingavefur um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar í undirbúningi

Kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa þeir kjósendur sem hafa kosningarrétt til Alþingis. Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram á sömu kjörstöðum og notast er við í almennum kosningum. Munu einstök sveitarfélög auglýsa nánar um kjörstaðina samkvæmt venju skömmu fyrir atkvæðagreiðsluna, m.a. hvenær þeir eru opnir, hvar þeir eru, hvernig er skipt í kjördeildir o.fl.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 28. janúar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 28. janúar 2010, bæði innan lands og utan. Kjósanda sem ekki getur kosið á kjördag, er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar frá og með þeim degi til kjördags. Hægt er að kjósa hjá öllum sýslumönnum á landinu, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á erlendri grundu hefst sama dag á vegum utanríkisráðuneytisins sem mun kynna fyrirkomulag þar að lútandi.

Þá er kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða er vistmaður þar, á dvalarheimili aldraðra eða stofnun fyrir fatlaða, heimilt að greiða atkvæði á stofnuninni. Með sama hætti fer um vistmann fangelsis. Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar. Einnig er kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans.



 

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.