Kjördæmi
Nú er í þriðja sinn kosið eftir kjördæmaskipan þeirri sem samþykkt var með stjórnarskrárbreytingu árið 1999. Þá var ákveðið að hafa kjördæmi fæst sex en flest sjö, og horfið frá fyrri stefnu um að kjördæmin væru átta talsins. Miðaði breytingin að því að draga úr misvægi atkvæða og laga hana að þróun búsetu í landinu. Í kjölfar þessara breytinga var lögum um kosningar til Alþingis frá árinu 2000 breytt til samræmis við stjórnarskrána og var kjördæmum þar fækkað úr átta í sex. Þrjú þessara sex kjördæma eru á landsbyggðinni og þrjú á höfuðborgarsvæðinu.
Norðvesturkjördæmi
Kjördæmið nær frá Akraneskaupstað til Akrahrepps og skulu þar vera átta kjördæmissæti og eitt jöfnunarsæti.
Norðausturkjördæmi
Kjördæmið nær frá Fjallabyggð til Djúpavogshrepps og skulu þar vera níu kjördæmissæti og eitt jöfnunarsæti.
Suðurkjördæmi
Kjördæmið nær frá sveitarfélaginu Hornafirði til sveitarfélagsins Voga og skulu þar vera níu kjördæmissæti og eitt jöfnunarsæti.
Suðvesturkjördæmi
Kjördæmið nær yfir Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ, Kópavogsbæ, Bessastaðahrepp, Seltjarnarneskaupstað, Mosfellsbæ og Kjósarhrepp og skulu þar vera tíu kjördæmissæti og tvö jöfnunarþingsæti.
Reykjavíkurkjördæmi suður
Kjósendur sem búa við sunnanverða Hringbraut, gömlu Hringbraut, Miklubraut eða Vesturlandsveg verða á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Reykjavíkurkjördæmi norður
Kjósendur sem búa við norðanverða Hringbraut, gömlu Hringbraut, Miklubraut eða Vesturlandsveg verða á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi norður. Kjalarnes (póstnúmer 116) tilheyrir Reykjavíkurkjördæmi norður.
Grafarholtshverfi (póstnúmer 113), austan Vesturlandsvegar, var áður innan marka Reykjavíkurkjördæmis norður en skiptist nú milli suður- og norðurkjördæmis um Kristnibraut, Gvendargeisla og Biskupsgötu eins og nánar kemur fram í auglýsingu landskjörstjórnar. Kjósendur sem búa sunnan við þessar götur verða á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi suður en þeir sem búa við þessar götur að norðanverðu verða á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Fimm vikum fyrir kjördag ákveður landskjörstjórn mörk kjördæma í Reykjavík miðað við íbúaskrá þjóðskrár. Skulu mörkin við það miðuð að kjósendur í hvoru kjördæmi um sig að baki hverju þingsæti, að meðtöldum jöfnunarsætum, séu nokkurn veginn jafnmargir. Gæta skal þess, eftir því sem kostur er, að hvort kjördæmi sé sem samfelldust heild.
Landskjörstjórn auglýsir mörk kjördæmanna í Stjórnartíðindum jafnskjótt og þau liggja fyrir, og eigi síðar en fjórum vikum fyrir kjördag (þremur vikum fyrir kjördag í kosningunum 25. apríl 2009). Sjá frétt hér.

