Alls 227.896 kjósendur á kjörskrárstofni fyrir alþingiskosningar 25. apríl 2009

Sveitarstjórnir semja kjörskrár eftir kjörskrárstofnum sem Þjóðskrá lætur þeim í té. Á stofnum þeim, sem hún hefur unnið vegna alþingiskosninganna 25. apríl 2009 eru 227.896 kjósendur og er fjöldi karla og kvenna svo til jafn. Konur eru 114.295 en karlar 113.601. Í endanlegri tölu kjósenda á kjörskrá, sem birt verður í skýrslu um kosningarnar, verður tekið tillit til tölu látinna og þeirra sem fá nýtt ríkisfang eftir að kjörskrárstofnar voru unnir, svo og breytinga sem verða á kjörskrá vegna leiðréttinga. Við alþingiskosningarnar 12. maí 2007 voru 221.330 kjósendur á kjörskrá og nemur fjölgunin 6.566 eða 3,0%.

Kjósendur alls á
kjörskrárstofni 2009

Karlar

Konur

Á kjörskrá
2007

Á kjörskrá
1999

Allt landið

227.896

113.601

114.295

221.330

201.443

Norðvesturkjördæmi

21.294

10.919

10.375

21.126

21.137

Norðausturkjördæmi

28.362

14.438

13.924

27.881

27.123

Suðurkjördæmi

32.505

16.667

15.838

30.592

27.191

Suðvesturkjördæmi

58.203

28.698

29.505

54.584

43.230

Reykjavíkurkjördæmi suður

43.748

21.296

22.452

43.391

-

Reykjavíkurkjördæmi norður

43.784

21.583

22.201

43.756

-


Kjósendur með lögheimili erlendis eru 9.924 eða 4,4% kjósendatölunnar og hefur þeim fjölgað um 1.131 frá síðustu alþingiskosningum eða um 12,9%. Kjósendum með lögheimili hér á landi fjölgar um 5.325 eða 2,6%. Þeir sem vegna aldurs fá nú að kjósa í fyrsta sinn til Alþingis eru 9.398 eða 4,1% af kjósendatölunni.

Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 á kosningarrétt hver íslenskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri þegar kosning fer fram og á lögheimili hér á landi. Íslenskur ríkisborgari, sem náð hefur 18 ára aldri og átt hefur lögheimili hér á landi, á og kosningarrétt í átta ár frá því hann flutti lögheimili af landinu, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Slíkur ríkisborgari á og kosningarrétt hér á landi eftir þann tíma, enda sé um það sótt (með ákvæði til bráðabirgða var kosningalögunum breytt þannig að viðmiðunardagur 1. desember var færður til 25. mars við kosningarnar í vor). Ákvörðun um að einhver sé þannig á kjörskrá tekinn gildir í fjögur ár eftir að umsókn var lögð fram. Nú eru á kjörskrárstofnum 772 kjósendur sem svo stendur á um en voru 227 við kosningarnar 2007. Þessi fjölgun nú helgast af framangreindri lagabreytingu.

Samkvæmt annarri breytingu til bráðabirgða á lögunum var hver maður nú tekinn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem hann átti lögheimili samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár fjórum vikum fyrir kjördag, 28. mars.

Sjá ítarlegri upplýsingar í pdf-skjali frá Þjóðskrá hér.

Sjá einnig talnaefni um kosningar á vef Hagstofu Íslands.

 

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.